top of page

1001 nótt í Palestínu

  • Oct 4, 2024
  • 2 min read



Sagnasafnið 1001 nótt heitir líka, Nætur í Arabíu. Enginn veit hvenær safnið var tekið saman en sumar sögurnar má staðsetja í tíma eftir sögupersónum og kringumstæðum sem sögurnar gerast í. Sögurnar spanna löndin frá Persíu í norðri til Afríku í suðri og Indlands í austri. Talið er að sumar sögurnar séu frá Mesapotamíu og því hluti af fornum sagnaarfi. Eins og oft í sagnaarfi er fjallað um fallvaltleika gæfunnar og breiskleika manna. Hér fyrir neðan er tilvitnun í söguna af Mamúd kónssyni. Hún er sögð 581. nóttina til þeirrar 582.


Kringumstæður sögunnar benda til að hún sé meira en 1000 ára gömul og í ljósi hennar virðist vandi átaka milli múslima og gyðinga óleysanlegur. (Auðvitað gera menn það sem guð boðar á meðan lífsandinn er með þeim, hvað sem koma mun eða skynsemi gæti vakið.*)


Þar er komið í sögu þessari að annar tveggja konungssona leitar lækninga fyrir föður sinn konung á Indíalandi. Ljóst er að konungsson trúði á mannkyn og gæsku þess, sama hver svo sem í hlut ætti. Hann hefur trúað á fyrirgefninguna og að allir menn væru jafnir fyrir guði. Þar sem allir væru börn sama guðs væri hjálpin nær sama hver í hlut ætti þegar lífsháski væri annars vegar.


„Hafði eldri bróðirinn brotizt gegnum margar þrautir og fór víða um óbyggðir, áður hann náði til hinnar miklu borgar, þar sem hann vonaði að fá læknisdóm þann, er hann átti að sækja. Kom hann skjótt auga á hið skrautlega samkunduhús Gyðinga, er honum var til vísað, gekk hann þar inn og beiddi Rabbínann að gefa sér vatnssopa til hressingar. Gyðingaskelmirinn gamli réði af dularbúningi hans, að hann mundi vera Mahómetstrúar, og með því trú hans gerið honum að skyldu, að drepa vantrúaða, þá blandaði hann eitri í vatnið, sem hann  rétti honum. Datt kónsson á augabragði dauður til jarðar, en Gyðingurinn sveipaði líkið í mottu, og fleygði því í jarðhús nokkurt undir musterinu; gekk hann síðan heim til húsa sinna og var hróðugur með sjálfum sér út af afreki sínu.“


Næst segir af yngri konungssyninum og viðskiptum hans við Gyðinginn og ekki er að orðlengja það að gyðingurinn hlýtur maklegan dauðdaga.


Hvernig mun svo samskiptasaga Gyðinga og Mahometsmanna sem nú eru uppi - enda?


(* En í borgum þessara þjóða, sem Drottinn Guð þinn gefur þér til eignar, skalt þú enga mannsál láta lífi halda. Miklu fremur skalt þú gjöreyða þeim: Hetítum, Amorítum, Kanaanítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, eins og Drottinn Guð þinn hefur fyrir þig lagt. 5ta Mósebók 20. kafli greinar 16 og 17. – Guð gaf Ísraelum lönd og borgir annarra þjóða þegar Móse leiddi Ísraela frá Egyptalandi og 20. kaflinn er lýsing á því hvernig myrða skuli hvert mannsbarn á því svæði sem Guð gaf Ísraelum en gera þá að þrælum lúti þeir í duftið áður en til átaka kemur.)

 
 
 

Comments


Single Post: Blog_Single_Post_Widget

©2018 by Ásgeir Beinteinsson. Proudly created with Wix.com

bottom of page