top of page

Hamagangurinn og Hamlet

  • Nov 15, 2025
  • 2 min read

Undirritaður viðvaningur leggur orð í belg – sem hefur stundað bæði leikhúsin í 30 ár.


Ég hef heyrt af gagnrýninni en ekki lesið, en sumar fyrirsagnir á fjebók hafa öskrað í andlitið á mér og truflað mig. Af hverju þarf að vera með þessi öskur í ljótum orðum og niðurlægjandi orðfæri? Heimurinn er vonandi ekki að farast út af einu leikriti.


Hamlet er á margan hátt góð sýning. Hryggjarstykki sögunnar kemur fram. Sviðsetningin er snjöll því að Litla sviðið í Borgarleikhúsinu minnir sterklega á þær myndir sem maður hefur séð af leikhúsi/leikhúsum Shakespeare á 17. öld. Mikil nálægð við áhorfendur ýkir áhrif verksins og sögunnar. Mig minnir að ég hafi séð það einhversstaðar að í upphafi sýninga hafi leikarar 17. aldar talað við áhorfendur og sviðsett með orðum.


Leiksýningar á þessum tíma voru skemmtanir fyrir fólkið og fjöldann og því var hávaði og hasar. Í uppsetningunni eru margar snjallar lausnir sem gaman er af.

(Hafið þetta í huga, þegar þið sjáið sýninguna – þeir sem lesa þetta.)


Það eru hins vegar tiktúrur og snúningar í verkinu sem ég sé að geti truflað. Þær trufla mig ekki en segja mér að einhver hafi fengið þessar hugmyndir á æfingatímanum. Sennilega rökstutt með vísan í gamla tímann. SJÓNARSPIL. Mig grunar að aðalleikarinn hafi fengið þær vegna þess hversu vel hann vinnur úr þeim og hefur gaman af. Mér finnst ég sjá þetta því að „eldri leikararnir“ eru aðeins úti á þekju – nei í öðru verki. (Nú er ég alls ekki að segja að þeir geri ekki vel. Leikararnir okkar eru nánast undantekningarlaust frábærir.)


Það má spyrja sig, hvort að tiktúrurnar og snúningarnir þjóni verkinu sem verið er að sviðsetja. Ég er ekki viss. Hamlet, verk Shakespeare á að eiga eitthvað sammannlegt sem lifir tímann af og segir okkur eitthvað í dag. Tekst það?


Athugum þessa framsetningu eins og fullyrðingu eða skoðun sem varpað er fram um þetta glæsilega verk Shakespeare. Njótum pælingarinnar.  Það má alveg setja þetta upp aftur svona og snyrta eitthvað.


Sýningin skemmti unga fólkinu – nema að unga fólkið hafi verið vinir ungu leikaranna. Það voru nokkur laus sæti eftir hlé.


Góða skemmtun.

Ásgeir Beinteinsson

 
 
 

Comments


Single Post: Blog_Single_Post_Widget

©2018 by Ásgeir Beinteinsson. Proudly created with Wix.com

bottom of page